Útgreiðsluleið I hentar þér ef þú vilt eiga möguleika á að njóta sparnaðarins snemma og ráðstafa honum sem mest sjálf/ur. Frjáls séreign erfist en samtryggingin erfist ekki.
Hentar þér ef þú vilt eiga möguleika á að njóta sparnaðarins snemma og ráðstafa honum sem mest sjálf/ur. Frjáls séreign erfist, en samtryggingin erfist ekki.
Útgreiðsla frjálsrar séreignar (4,01%) getur hafist við 60 ára aldur og er hún þá laus til útborgunar líkt og viðbótarlífeyrissparnaður. Greiðslur úr samtryggingu (7,99%) hefjast við 70 ára aldur og tryggja ævilangan ellilífeyri frá 70 ára aldri, sem og rétt til örorku-, maka- og barnalífeyris. Sjóðfélagi sem tekur alla séreign út við 60 ára aldur þarf að hafa í huga að útgreiðsla úr samtryggingu hefst ekki fyrr en við 70 ára aldur.
Ef útgreiðsluleið I er valin er unnt að flýta töku ellilífeyris úr samtryggu fram til 65 ára aldurs og lækka þá mánaðarlegar greiðslur í takt við það þar sem greiðslur dreifast yfir lengri tíma.
Ef ekki er valin ákveðin útgreiðsluleið fer sparnaðurinn sjálfkrafa í útgreiðsluleið I. Einnig er hægt að velja Útgreiðsluleið III.