Viðbótarlífeyrissparnaður er frádráttarbær frá skattskyldum tekjum við innborgun, en greiddur er af honum tekjuskattur við útborgun. Iðgjöldum er því skilað óskattlögðum í séreignarsparnað, en þegar að útborgun kemur er sparnaðurinn skattlagður eins og hver önnur laun. Þetta þýðir að greiðslu á tekjuskatti er frestað þangað til útborgun hefst og getur launþeginn þá mögulega hagnast með tvennu móti. Annars vegar ef launþeginn á ónýttan persónuafslátt þegar inneignin er tekin út og hins vegar ef tekjuskattur hefur lækkað þegar að úttekt kemur.
Ekki er greiddur fjármagnstekjuskattur vegna þeirra vaxtatekna sem launþeginn ávinnur sér á sparnaðartímanum, né eignarskattur af uppsafnaðari eign. Við fráfall er sparnaðurinn greiddur til erfingja og ekki er greiddur erfðafjárskattur. Ekki er greiddur eignaskattur af inneign af viðbótarlífeyrissparnaði.