Sjóðfélagar

Tvær leiðir sem spila vel saman

Öllum launþegum ber að greiða framlag til lögbundins lífeyrissparnaðar sem 
tryggir meðal annars ævilangan lífeyri við starfslok. 

Flestir lækka verulega í launum er þeir hefja töku lífeyris. Til að draga úr
tekjuskerðingu mælum við eindregið með að sem flestir komi sér upp aukasjóði
í formi viðbótarlífeyrissparnaðar.

Bæklingur um lífeyrissparnað hjá Íslenska lífeyrissjóðnum


Lögbundinn lífeyrissparnaður

Öllum launþegum á aldrinum 16-70 ára, og þeim sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi, er lögum samkvæmt skylt að greiða í lífeyrissparnað. Lögbundinn lífeyrissparnaður nemur að lágmarki 12% af heildarlaunum einstaklings og skiptist þannig að launagreiðandi greiðir 8% á móti 4% framlagi launþegans.

Nánar um lögbundinn lífeyrissparnað

Kostir lögbundins lífeyrissparnaðar

  • Ævilangur lífeyrir
  • Samspil sameignar og séreignar
  • Fjölbreyttar ávöxtunarleiðir
  • Örorku-, maka- og barnalífeyrir

Viðbótarlífeyrissparnaður

Launþegar og sjálfstæðir atvinnurekendur geta greitt allt að 4% af heildarlaunum sínum í viðbótarlífeyrissparnað. Að auki hefur í flestum kjarasamningum verið samið um að launagreiðendur greiði allt að 2% mótframlag gegn 2% eða 4% framlagi launþega.

Nánar um viðbótarlífeyrissparnað

Kostir viðbótarlífeyrissparnaðar


Hverjir geta greitt til Íslenska lífeyrissjóðsins?

Þeir sem ekki eru bundnir af ákvæðum kjarasamninga eða laga er frjálst að greiða lögbundinn lífeyrissparnað til Íslenska lífeyrissjóðsins. Öllum er heimilt að greiða viðbótarlífeyrissparnað til Íslenska lífeyrissjóðsins.

Nánar um Íslenska lífeyrissjóðinn

Kostir Íslenska lífeyrissjóðsins

  • Samspil séreignar og samtryggingar
  • Fjölbreyttar ávöxtunarleiðir
  • Traust fjárfestingarstefna
  • Persónuleg ráðgjöf og þjónusta
  • Heildaryfirlit yfir stöðuna í Einkabanka Landsbankans

Nánari upplýsingar fyrir sjóðfélaga

Staða inneignar | Útgreiðsla | Hugtök | Spurt og svarað | Reiknivélar | Umsóknir