Íslenski lífeyrissjóðurinn býður upp á fjórar ávöxtunarleiðir fyrir viðbótarlíferyrissparnað. Hver ávöxtunarleið tekur mið af aldri þess sem sparar, en saman mynda þær Lífsbraut Íslenska lífeyrissjóðsins. Sjóðfélagar færast sjálfkrafa á milli leiðanna Líf I, II, III og IV er þeir eldast. Hér má skoða fjárfestingarstefnu allra ávöxtunarleiða Íslenska lífeyrissjóðsins auk núverandi samsetningar eigna.
Einblöðungur
(Nafnávöxtun í % 30. apríl 2013) * Meðalávöxtun á ári til 30. apríl 2013
Fyrir einstaklinga sem vilja taka áhættu og ná góðri ávöxtun til lengri tíma. Sveiflur í ávöxtun geta verið miklar yfir skemmri tímabil en stefnt er að góðri langtímaávöxtun. Hentar því þeim sem eiga 20 ár eða meira eftir af lífeyrissöfnunartíma sínum.
Fyrir einstaklinga sem vilja taka hóflega áhættu og ná góðri ávöxtun til lengri tíma. Sveiflur í ávöxtun safnsins geta verið þó nokkrar yfir skemmri tímabil en stefnt er að góðri langtímaávöxtun. Hentar því þeim sem eiga meira en 5 ár eftir af lífeyrissöfnunar-tíma sínum.
Fyrir einstaklinga sem nálgast töku lífeyris eða eru nú þegar farnir að taka út lífeyri.
Líf IV hentar þeim einstaklingum sem nálgast töku lífeyris eða eru nú þegar farnir að taka út lífeyri. Lögð er áhersla á trausta og jafna ávöxtun.
Samtrygging fylgir sömu ávöxtunarleið og Líf II í samræmi við fjárfestingarstefnu Íslenska lífeyrissjóðsins.